Ólafía Þórunn Kristinsdóttir endaði í 26.-31. sæti á Pure Silk-mótinu í golfi sem lauk á Bahamaeyjum í gær.
Ólafía Þórunn fékk tæpa 12 þúsund dollara í verðlaunafé, 1,2 milljónir króna, fyrir árangur sinn á þessu fyrsta móti á LPGA-mótaröðinni á þessu tímabili. Ólafía átti frábæran lokahring sem hún lék á 68 höggum eða á fimm höggum undir pari og átt eitt besta skor dagsins. Ólafía lék hringina þrjá á 218 höggum eða á samtals einu höggi undir pari en vegna veðurs þurfti að fella niður einn hringinn á mótinu og voru spilaðar 54 holur á mótinu.
Brittany Lincicome frá Bandaríkjunum fagnaði sigri á mótinu en hún lék á samtals 207 höggum, 12 höggum undir pari. Wei-Ling Hsu frá S-Kóreu hafnaði í öðru sæti á 209 höggum og Arny Yang frá S-Kóreu og Shanshan Feng frá Kína komu næstar á 210 höggum.