Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir fór af stað með miklum sveiflum í kvöld á öðrum hring Opna ástralska mótsins í Adelaide, sem er hluti af LPGA-mótaröðinni, þeirri sterkustu í heimi.
Valdís hóf keppni laust fyrir klukkan tíu í kvöld (á föstudagsmorgni í Ástralíu) en hún lék fyrsta hringinn á pari, 72 höggum, og var þá í 46. sæti.
Valdís byrjaði á pari í kvöld en fékk síðan örn á annarri holu þegar hún lék par 4 holu á aðeins tveimur höggum. En á þriðju holu fékk hún skolla, og bætti fyrir það með fugli á fjórðu holunni. Eftir að hafa parað þá fimmtu var hún á samtals 2 höggum undir pari.
Þá kom hins vegar afleit sjötta hola þar sem Valdís fékk skramba, lék par 3 holu á 5 höggum, og var þá komin aftur á parið.
Því svaraði hún með fugli á sjöundu holu og fékk par á 8. holu. Að henni lokinni er hún á einu höggi undir pari og í 32.-46. sæti eins og staðan er núna. Niðurskurðurinn miðast sem stendur við eitt högg yfir pari og Valdís er því á góðri leið en á eftir að ljúka tíu holum á næstu klukkutímum.
Hringurinn hefur sem sagt verið svona: Par, örn, skolli, fugl, par, skrambi, fugl, par.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir byrjar ekki annan hringinn fyrr en um klukkan tvö í nótt en hún lék á tveimur höggum yfir pari, 74 höggum, í gær, og er sem stendur í 75.-88. sæti. Ólafía er því aðeins einu höggi frá niðurskurðarlínunni eins og er.
Tvær suðurkóreskar konur eru í efstu sætunum. Jiyai Shin hefur leikið á 8 höggum undir pari og Jin Young Ko á 7 höggum undir pari.