Frábær byrjun Valdísar

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. Ljósmynd/ladieseuropeantour.com

Valdís Þóra Jónsdóttir hefur byrjað frábærlega á þriðja hring Opna ástralska mótsins í golfi í Adelaide og er komin upp í áttunda sæti eftir fjórar fyrstu holurnar.

Valdís lék fyrstu tvo hringina á pari, 144 höggum samtals, og fór auðveldlega í gegnum niðurskurðinn en Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er úr leik þar sem hún lék samtals á sjö höggum yfir pari og komst ekki í gegn.

Valdís hóf þriðja hringinn laust fyrir miðnættið, eða um tíuleytið á laugardagsmorgni á áströlskum tíma. Hún fékk fugl á fyrstu holu, aftur á annari holu, par á þriðju og síðan þriðja fuglinn á fjórðu holu.

Hún er því á þessari stundu, um klukkan hálfeitt að íslenskum tíma, á 3 höggum undir pari og í 8.-16. sæti af öllum keppendum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert