Ánægð en á helling inni – tveimur yfir á lokahringnum

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. Ljósmynd/LET/Tristan Jones

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni frá Akranesi, lauk leik á tveimur höggum yfir pari á lokahring sínum á opna ástralska mótinu í golfi en mótið er hluti af LPGA-mótaröðinni í golfi, þeirri sterkustu í heimi. Hún endar því í 57.-61. sæti á +4 sem verður að teljast afar góður árangur hjá Valdísi sem er með keppnisrétt á Evrópumótaröðinni.

Valdís fékk þrjá fugla, einn skolla og tvo tvöfalda skolla á lokahringnum en samtals urðu tvöföldu skollarnir sjö á hringjunum fjórum. Þeir urðu þrír á fyrstu tveimur hringjunum en samt sem áður komst Valdís í fyrsta skipti í gegnum niðurskurðinn í LPGA-mótaröðinni.

Í samtali við mbl.is að segist Valdís eiga mikið inni.

„Ég er auðvitað ánægð með að komast í gegnum niðurskurðinn en mér finnst ég eiga helling inni. Ég fékk skuggalega mikið af tvöföldum skollum í þessu móti og margir þeirra komu upp úr engu og af miðri braut sem er mjög óvanalegt fyrir mig en ég læri bara af þessu móti,“ sagði Valdís.

Valdís spilaði mjög vel á mótinu og fékk meira en fjóra fugla að meðaltali á hring og var á parinu eftir fyrstu tvo hringina.

„Ég spilaði heilt yfir mjög vel og var með helling af fuglum og í mörgum tækifærum alla hringina sem var ánægjulegt. Ég hefði auðvitað viljað enda hærra miðað við spilamennskuna en þessir blessuðu tvöföldu skollar skemma fljótt fyrir annars góðu golfi. En er ánægð með bætinguna í leiknum mínum frá fyrsta mótinu og þar til núna,“ sagði Valdís Þóra. 

Hún flýgur næst til Coffs Harbour í Ástralíu og mun þar spila á tveimur mótum áður en hún heldur til Suður-Afríku 4. mars en allt eru þetta mót í Evrópumótaröðinni í golfi.

Jin Young Ko frá Suður-Kóreu vann mótið og lauk leik á 14 höggum undir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert