Ólafía af stað síðdegis í dag

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Ljósmynd/LPGA

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur leik á LPGA-mótinu Bank of Hope Founders Cup í Phoenix, Arizona, klukkan 16 í dag að íslenskum tíma, eða klukkan níu að morgni í Phoenix.

Með henni í ráshópi eru Lauren Coughlin frá Bandaríkjunum og Daniela Darquea frá Ekvador. Ólafía er í 71. sæti stigalista mótaraðarinnar í ár en Darquea er í 110. sæti og Coughlin í 119. sæti.

Þetta er fimmta LPGA-mót tímabilsins og það þriðja þar sem Ólafía er á meðal keppenda. Um er að ræða fjögurra daga mót sem lýkur á sunnudag en niðurskurður er eftir tvo hringi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert