Birgir Leifur á tveimur yfir í Kenía

Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson. Ljósmynd/GSÍ

Atvinnukylfingarnir Birgir Leifur Hafþórsson og Axel Bóasson hófu leik í morgun á Barclays mót­inu í golfi í Kenía en þetta er fyrsta mótið í Áskorendamótaröðinni á þessu tímabili.

Birgir Leifur var að ljúka sínum fyrsta hring á mótinu sem hann lék á 73 höggum eða tveimur höggum yfir pari. Birgir Leifur fékk fjóra fugla á hringnum, sex skolla og lék átta holur á parinu. Hann er sem stendur í 75.-83. sæti en margir kylfingar eiga eftir að ljúka leik.

Axel hefur aðeins lokið við að spila eina holu sem hann lék á pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert