Ólafía með á fyrsta risamóti ársins

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Ljósmynd/LPGA

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir keppir á sínu fyrsta risamóti á árinu á LPGA-mótaröðinni í vikunni en hún er á meðal keppenda á ANA Inspiration sem hefst í Kaliforníu í Bandaríkjunum á fimmtudaginn.

Mótið fer fram á Mission Hills Country Club í Rancho Mirage í Kaliforníu. Þetta er í fyrsta sinn sem Ólafía Þórunn keppir á þessu móti. Hún er þar með fyrsti íslenski kylfingurinn sem leikur á þessu risamóti.

Heildarverðlaunaféð á mótinu er 2,8 milljónir dollara en sú upphæð jafngildir um 283 milljónum króna.

Ólafía var í eldlínunni um síðustu helgi á Kia Classic-mót­inu þar sem hún hafnaði í 76.-80. sæti en hún lék hringina fjóra á samtals tveimur höggum yfir parinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert