Sænskur sigur eftir langlífan bráðabana

Pernilla Lindberg vann fyrsta stórmót ársins.
Pernilla Lindberg vann fyrsta stórmót ársins. AFP

Loks stendur uppi sigurvegari á ANA Inspiration-mótinu, fyrsta stórmóti ársins, í LPGA-mótaröðinni í golfi eftir ótrúlegan bráðabana.

Það er hin sænska Pernilla Lindberg sem hafði betur að lokum en hún keppti við Inbee Park frá Suður-Kóreu og Jennifer Song frá Bandaríkjunum í bráðabana sem spannaði átta holur og tvo daga.

Pernilla er í 95. sæti heimslistans og var að vinna sitt fyrsta stórmót en hennar besti árangur til þessa var 5. sætið í US Open-mótaröðinni árið 2015.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir komst ekki í gegnum niðurskurðinn eftir 2. hringinn sem leikinn var á föstudaginn var.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert