Ótrúleg tilþrif hjá Spieth (myndskeið)

Jordan Spieth.
Jordan Spieth. AFP

Masters hefst á Augusta National-vellinum á fimmtudag, fyrsta risamót ársins hjá körlunum í golfinu. Dagana fyrir mótið er talsvert um að kylfingarnir skemmti áhorfendunum með ýmsum kúnstum og Jordan Spieth sýndi mögnuð tilþrif við slíkt tilefni í dag.

Spieth sigraði á Masters árið 2015 og hann var í gær ásamt fleirum við bakkann á 16. holunni. Reyndu kylfingarnir að leika sér að því að láta golfboltann fleyta kerlingar yfir vatnið og upp á 16. flötina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert