Ólafía Þórunn keppir á Havaí

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Ljósmynd/LPGA

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir verður á meðal keppenda á LOTTE meistaramótinu í golfi sem hefst á bandarísku Kyrrahafseyjunni Havaí á morgun en mótið er hluti af LPGA-mótaröðinni.

Leiknar verða 72 holur á fjórum dögum og er mótið það sjötta sem Ólafía Þórunn tekur þátt í LPGA-mótaröðinni á þessu tímabili. Henni hefur tekist að komast í gegnum niðurskurðinn á tveimur af þessum mótum og besti árangur hennar er 24. sæti.

Ólafía hefur leik annað kvöld klukkan 22.28 að íslenskum tíma en þá er klukkan 12.28 í hádeginu á Havaí. Með henni í ráshópi eru Mina Harigae frá Bandaríkjunum og Julieta Granada frá Paragvæ.

Nánar um mótið

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert