Ágæt byrjun Birgis Leifs í Madríd

Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson. Ljósmynd/Seth

Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson er sem stendur að leik á Opna spænska meistaramótinu sem fram fer í Madríd. Mótið er það fyrsta hjá Birgi á Evrópumótaröðinni á tímabilinu.

Birgir fer örugglega af stað, en hann er á pari eftir fyrri níu holurnar á fyrsta degi. Hann fékk tvo fugla, tvo skolla og fimm pör og er í 84.-113. sæti af 156 kylfingum. 

Hægt er að fylgjast með stöðunni á mótinu hér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert