Lék á þremur undir pari

Birgir Leifur Hafþórsson
Birgir Leifur Hafþórsson Ljósmynd/Seth

Birgir Leifur Hafþórsson lék fyrri níu holurnar á öðrum hring Opna spænska meistaramótsins í golfi í morgun á þremur höggum undir pari, eða á 33 höggum.

Hann fékk fugl á þremur brautum og par á sex. Birgir fór vel af stað á tíundu braut sem hann lék á einu höggi undir pari. 

Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. 

Birgir Leifur stóð höllum fæti í keppninni þegar byrjað var í morgun eftir að hafa leikið síðari níu brautirnar í gær illa. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert