Ólafía Þórunn í Hollywood

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. AFP

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Íþróttamaður ársins 2017, er nú stödd á slóðum kvikmyndastjarnanna í Hollywood í Los Angeles. 

Ólafía keppir á fimmtudaginn í Los Angeles þegar LA open hefst en mótið er haldið hjá Wilshire klúbbnum en þar eru ýmsar kvikmyndaleikarar meðlimir eins og Will Ferrell og Mark Wahlberg. 

LPGA-mótaröðin hefur ekki komið við í Los Angeles í áratug en mikil hefð er hins vegar fyrir golfíþróttinni hjá Wilshire klúbbnum sem stofnaður var árið 1919 og verður því hundrað ára á næsta ári. Þar léku golf í eina tíða athafnamaðurinn Howard Hughes, leikarinn Harold Lloyd og söngvarinn Bing Crosby svo einhverjir séu nefndir.

Mótið í LA verður geysilega sterkt og fimm efstu konur heimslistans eru til að mynda á meðal keppenda. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert