Valdís á meðal efstu kylfinga

Valdís Þóra Jónsdóttir
Valdís Þóra Jónsdóttir AFP

Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir fór vel af stað á Lalla Meryem-mótinu í golfi sem fram fer í Marokkó. Mótið er hluti af LET-mótaröðinni. Valdís lék fyrsta hringinn í dag á 71 höggi eða einu höggi undir pari.

Valdís er í 5. sæti ásamt átta öðrum kylfingum. Þrír kylfingar eru á tveimur höggum undir pari og Nicole Garcia frá Suður-Afríku er í toppsætinu á fjórum höggum undir pari. 

Valdís fékk fjóra fugla, þrjá skolla og ellefu pör á hringnum í dag. Hún leikur á öðrum hringnum á morgun og verður spennandi að sjá hvort hún verði áfram í toppbaráttunni. 

Hægt er að sjá stöðu mála í mótinu með því að smella hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert