Ólafía í eldlínunni í San Francisco

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Ljósmynd/LPGA

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur leik á LPGA Mediheal meistaramótinu í golfi í San Francisco í Bandaríkjunum á morgun en mótið er hluti af LPGA-mótaröðinni.

Mótið er 72 holur og komast 70 efstu í gegnum niðurskurðinn að loknum öðrum keppnisdegi. Alls eru 144 keppendur og margir af bestu kylfingum heims mæta til leiks á þetta mót.

Ólafía Þórunn hefur keppt á sjö mótum á þessu tímabili. Hún hefur komist í gegnum niðurskurðinn á tveimur mótum af alls sex til þessa. Besti árangur hennar er 26. sæti á fyrsta mótinu á Bahamaeyjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert