Ólafía í eldlínunni í Virginíu

Ólafía á mótinu í Texas um síðustu helgi.
Ólafía á mótinu í Texas um síðustu helgi. AFP

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur leik á morgun á Kingsmill Championship mótinu í golfi sem fram fer í Virginíu í Bandaríkjunum.

Mótið er hluti af LPGA-mótaröðinni og verður það tíunda sem Ólafía tekur þátt í á þessu tímabili. Hún hefur komist í gegnum niðurskurðinn á þremur þeirra en bestu árangri náði hún á Bahama þar sem hún endaði í 26. sæti.

Ólafía Þórunn hafnaði í 32. til 45. sæti á Texas Classic-mót­inu sem lauk um síðustu helgi en aðeins voru leikn­ir tveir hring­ir á mót­inu vegna slæmra veður­skil­yrða. Hún fór upp um 19 sæti á pen­ingalista mót­araðar­inn­ar og er í 101. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert