Ólafía missti flugið í lokin

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er að öllum líkindum úr leik á Kings­mill Champ­i­ons­hip-mót­inu á LPGA-mótaröðinni í Virg­in­íu­fylki í Banda­ríkj­un­um. Hún lék annan hringinn í dag á 71 höggi eða á pari, rétt eins og hún gerði á fyrsta hring og er hún því samanlagt á parinu.

Útlitið var gott hjá Ólafíu fyrir síðustu tvær holurnar er hún var á þremur höggum undir pari. Tvöfaldur skolli á næstsíðustu og skolli á síðustu holunni gerði það hins vegar að verkum að hún fór á parið. 

Flestir kylfingar eiga eftir að ljúka leik og gæti staða Ólafíu því breyst og hún farið áfram, en sem stendur þurfa kylfingar að vera á einu höggi undir pari til að fara áfram. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert