Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, íþróttamaður ársins 2017, var ánægð með spilamennsku sína á Kingsmill meistaramótinu í Virginíu í Bandaríkjunum á dögunum á LPGA-mótaröðinni í golfi.
„Það var frábært að spila á Kingsmill“ sagði Ólafía sem lék gott golf á mótinu og fékk sex fugla og tapaði aðeins höggum á fjórum holum af 36. Tveir tvöfaldir skollar voru henni aftur á móti dýrir en hún endaði á parinu í heildina og missti naumlega af niðurskurðinum.
„Völlurinn var frábær og spilamennskan er öll að koma til,” sagði Ólafía sem hitti að eigin sögn nánast hverja einustu braut og flöt í áætluðum fjölda högga.
„Ég hef heldur ekki verið eins afslöppuð og liðið jafn vel í langan tíma á vellinum. Ég er spennt fyrir næstu vikum“ sagði Ólafía í lauslegri þýðingu en færslu hennar má sjá hér að neðan.