Ólafía Þórunn á ellefta LPGA-mótinu

Ólafía Þórunn og Ragnar Már Garðarsson.
Ólafía Þórunn og Ragnar Már Garðarsson. Ljósmynd/golf.is

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur á morgun keppni á Volvik meistaramótinu í golfi sem fram fer í Michigan í Bandaríkjunum og er hluti af LPGA-mótaröðinni.

Fram kemur á golf.is að Ragnar Már Garðarsson úr GKG verður aðstoðarmaður Ólafíu Þórunnar í þessu móti en hann var einnig aðstoðarmaður hennar á síðasta móti.

Ólafía er í ráshóp með Candie Kung og Dani Holmqvist fyrstu tvo keppnisdagana. Þær hefja leik kl. 9:05 að staðartíma eða kl. 13:05 að íslenskum tíma.

Volvik mótið er ellefta mótið á LPGA mótaröðinni á þessu tímabili hjá Ólafíu. Hún hefur komist í gegnum niðurskurðinn á þremur mótum og er hún í 108. sæti á CME stigalista LPGA mótaraðarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert