Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson er í fínum málum eftir fyrsta hring á Real Czech-mótinu á evrópsku Áskorendamótaröðinni í golfi. Birgir lék hringinn á 69 höggum eða þremur höggum undir pari og er hann í 19.-29. sæti.
Birgir fékk sex fugla og þrjá skolla á holunum 18 og fer hann í gegnum niðurskurðinn á morgun með svipaðri spilamennsku.
Axel Bóasson náði sér ekki eins vel á strik. Axel lék á 75 höggum eða þremur höggum yfir pari og er í 121. sæti ásamt nokkrum öðrum kylfingum. Axel fékk tvo fugla, þrjá skolla og einn tvöfaldan skolla.