Guðmundur sá eini sem fór áfram

Guðmundur Ágúst Kristjánsson
Guðmundur Ágúst Kristjánsson Ljósmynd/Ófeigur Lýðsson

Guðmundur Ágúst Kristjánsson komst í dag áfram í gegnum niðurskurðinn á Parnu Bay Golf Links Challenge-mótinu sem fer fram á Nordic Golf-mótaröðinni. Guðmundur var sá eini sem komst áfram af fjórum íslenskum kylfingum sem hófu leik í mótinu.

Guðmundur er jafn í 15. sæti að tveimur hringjum loknum á 4 höggum undir pari. Hann lék annan hringinn á 3 höggum undir pari og fór upp um 18 sæti fyrir vikið.

Andri Þór Björnsson, Haraldur Franklín Magnús og Ólafur Björn Loftsson tóku allir þátt í mótinu en komust ekki í gegnum niðurskurðinn. Andri lék á þremur höggum yfir pari, Ólafur á 4 höggum yfir pari og Haraldur á 5 höggum yfir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert