Ein hola skemmdi allt fyrir Ólafíu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er úr leik á Volvik-meist­ara­mót­inu í golfi sem fram fer í Michigan í Banda­ríkj­un­um. Ólafía lék annan hringinn í dag á 75 höggum eða þremur höggum yfir pari og var tveimur höggum frá því að komast áfram.

Ólafía var í fínum málum þangað til þrjár holur voru eftir, en hún lék þær á fjórum höggum yfir pari, og fékk m.a þrefaldan skolla á áttundu holu sem skemmdi möguleika hennar á að komast áfram. 

Ólafía lauk leik á samtals tveimur höggum yfir pari og í 80.-93. sæti. 

Ólafía í Michigan 2. hringur opna loka
kl. 23:11 Textalýsing 9 - par Ólafía fær par á síðustu holunni og er úr leik. Þvílíkt svekkelsi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert