Birgir Leifur Hafþórsson heldur áfram að gera fína hluti á Real Czech-mótinu í evrópsku áskorendamótaröðinni í golfi. Hann lék þriðja hringinn í dag á 70 höggum eða tveimur höggum undir pari og er hann á samtals sjö höggum undir pari.
Birgir er í 14. sæti ásamt nokkrum öðrum kylfingum, sjö höggum á eftir Minkyu Kim frá Suður-Kóreu sem er í efsta sæti á 14 höggum undir pari. Fjórði og síðasti dagur mótsins fer fram á morgun.
Axel Bóasson var einnig á meðal keppenda á mótinu en hann komst ekki í gegnum niðurskurðinn.