Góð byrjun nægði McIlroy ekki

Viðbrögð Rory McIlroy þegar pútt rataði ekki rétta leið í …
Viðbrögð Rory McIlroy þegar pútt rataði ekki rétta leið í gær. AFP

Rory McIlroy tókst ekki að landa sigri á BMW Championship á Wentworh-vellinum í gær þrátt fyrir að hafa leikið fyrstu tvo hringina á 67 og 65 höggum. Hann missti Ítalann Francesco Molinari fram úr sér á lokadeginum. 

Molinari lék á 70, 67, 66 og 68 höggum sem er samtals 17 högg undir pari en McIlroy var á 15 undir en seinni tvo hringina lék hann á 71 og 70. 

Molnari fékk tæplega eina milljón evra í sinn hlut og hann er nú orðinn jafn Costantino Rocca þegar kemur að sigrum á Evrópumótaröðinni. Hafa þeir unnið fimm mót hvor og eru sigursælustu Ítalirnir í sögu mótaraðarinnar. 

Francesco Molinari
Francesco Molinari AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert