Ólafía í 25. - 35. sæti

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. AFP

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, úr GR, er í 25.-35. sæti að loknum fyrsta keppnisdegi á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi en í nótt höfðu allir kylfingarnir lokið við að leika fyrsta hringinn. 

Ólafía komst vel frá fyrsta hringnum og lék á parinu en mótið fer fram í Alabama. Er hún fimm höggum á eftir efsta kylfingum: Ariyu Jutanugarn frá Tælandi, Jeongeun Lee6 frá S-Kóreu og Söruh Jane Smith frá Ástralíu. 

Eins og staðan er núna er því spáð að niðurskurðurinn verði þrjú högg yfir parinu, þ.e.a.s þeir kylfingar sem verða á tveimur yfir pari og betra skori eftir 36 holur haldi áfram og spili á morgun og sunnudag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert