Magnaður endasprettur tryggði Birgi sigur

Birgir Björn Magnússon
Birgir Björn Magnússon mbl.is/Árni Sæberg

Birgir Björn Magnússon vann glæsilegan sigur á Símamótinu í golfi, en mótið er liður á Eimskipsmótaröðinni. Birgir lék þrjá hringi á samanlagt 13 höggum undir pari, fjórum höggum betur en Kristján Þór Einarsson sem varð annar. Leikið var á Hlíðavelli í Mos­fells­bæ.

Birgir lék síðari níu holurnar á þriðja og síðasta hringnum í dag einstaklega vel, eða á 29 höggum, en það telst til tíðinda að leika níu holur á undir 30 höggum. Birgir fékk örn á 12. og 13. braut og svo þrjá fugla í röð á 14.,15. og 16. braut.

Hann lék fyrsta hringinn á þremur höggum undir pari, annan hringinn á fjórum undir og þriðja hringinn í dag á sex höggum undir parinu. 

Sigurður Bjarki Blumenstein hafnaði í 3. sæti á fimm höggum undir pari og Ingvar Andri Magnússon varð fjórði á tveimur höggum undir pari. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert