Örn kom Ólafíu í fín mál

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék á 69 höggum eða þremur höggum undir pari á fyrsta hring á Meijer LPGA Classic for Simply Give-mótinu í Grand Rapids í Michigan í kvöld.
Hún fékk einn örn, þrjá fugla og tvo skolla á holunum 18, en örninn fékk hún á næstsíðustu holunni og bætti hún stöðu sína verulega í leiðinni. 
Ólafía var í 22.-35. sæti er hún lauk leik í dag, en sú staða gæti breyst lítillega er allir kylfingar ljúka leik. Annar hringur mótsins fer fram á morgun og er Ólafía í góðri stöðu og líkleg til að fara í gengum niðurskurðinn. 
Ólafía í Michigan - 1. hringur opna loka
kl. 20:52 Textalýsing 8 - ÖRN Glæsilegt! Ólafía fær örn á áttundu holu sem er par fimm. Hún lék hana á þremur höggum og er allt í einu þremur höggum undir pari. Já takk! Staðan: -3, 23.-33. sæti.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert