Axel og Birgir Leifur úr leik

Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson.

Atvinnukylfingarnir Axel Bóasson og Birgir Leifur Hafþórsson eru báðir úr leik á Hauts de France Golf Open-mótinu sem fram fer í Lumbres í Frakklandi. 

Birgir Leifur lék samanlagt fjórum höggum yfir pari og var einu höggi frá því að fara í gegnum niðurskurðinn. Hann lék á 75 höggum, fjórum höggum yfir pari á fyrsta hring í gær, en á parinu í dag.

Axel lék fyrri hringinn í gær á 73 höggum, tveimur höggum yfir pari og var í fínum málum fyrir daginn í dag. Hann átti hins vegar afleitan dag í dag og lék á 80 höggum, níu höggum yfir pari og samanlagt á 11 höggum yfir pari. 

Axel Bóasson.
Axel Bóasson. Ljósmynd/Ófeigur Lýðsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert