Ólafía á þremur yfir pari

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir spilar nú annan hring sinn á Meijer …
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir spilar nú annan hring sinn á Meijer LPGA Classic for Simply Give-mót­inu í Grand Rapids í Michigan. AFP

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er nú hálfnuð með sinn annan hring á Meijer LPGA Classic for Simply Give-mót­inu í Grand Rapids í Michigan. Ólafía fór fyrstu níu holurnar í dag á 39 höggum og var því á þremur höggum yfir pari.

Hún fór fyrri hringinn í gær á þremur undir pari en hún var að klára tíundu braut vallarins þar sem hún fór á fjórum höggum sem er par brautarinnar. Hún er því á pari í mótinu, eins og sakir standi og rétt fyrir neðan niðurskurðarlínuna í 68.-97. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert