Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lauk keppni á Meijer Classic mótinu í golfi, sem er hluti af LPGA mótaröðinni, í dag. Hún lék samanlagt á sex höggum undir pari.
Ólafía lék fjórða hringinn í dag á 71 höggi eða einu undir pari, hún fékk þrjá fugla og tvo skolla. Sem stendur er hún í 57.-65. sæti en ekki allir keppendur hafa lokið keppni.
Um er að ræða fínan árangur hjá Ólafíu sem hafði ekki komist í gegnum niðurskurð undanfarinna móta. Hún endaði í 58.-65. sæti.
Ólafía í Michigan - 4. hringur | Opna lýsingu Loka | ||
---|---|---|---|
kl. 16:52 Textalýsing PAR Ólafía lýkur keppni með pari á 18. holu. Hún er því sex höggum undir pari í heildina og í 58. sæti sem stendur. Flottur árangur. | |||
Augnablik — sæki gögn... |