Guðmundur efstur Íslendinganna

Guðmundur Ágúst Kristjánsson er efstur Íslendinganna.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson er efstur Íslendinganna. Ljósmynd/Ófeigur Lýðsson

Guðmundur Ágúst Kristjánsson er efstur Íslendinganna þriggja sem taka þátt á Camfil Nordic Championship-mótinu sem er hluti af Nordic Tour-mótaröðinni í golfi, en leikið er í Svíþjóð.

Guðmundur lék á 73 höggum í dag eða á einu höggi yfir pari. Hann lék hringinn á einu höggi færra en þeir Andri Þór Björnsson og Haraldur Franklín Magnús sem léku á 74 höggum eða tveimur höggum yfir pari. 

Guðmundur Ágúst er í 51.-65. sæti á meðan Andri og Haraldur eru í 66.-82. sæti. Annar hringur mótsins fer fram á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert