Leið mjög vel allan hringinn

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.

„Mér leið mjög vel allan hringinn, ég var mjög ákveðin,“ sagði Ólafía Þórunn Kristinsdóttir atvinnukylfingur í samtali við LPGA, eftir fyrsta hringinn sinn á Thorn­berry Creek-golf­mót­inu í bæn­um Oneida í Wiscons­in-ríki í norðaust­ur­hluta Banda­ríkj­anna.

Ólafía fékk sex fugla í dag og lék á þremur höggum undir pari. Þegar þessi frétt er skrifuð er hún í 28.-54. sæti en ekki hafa allir kylfingar lokið við fyrsta hringinn.

„Sjálfstraustið var gott og ég var yfirveguð. Ég var að setja niður góð pútt og ég elska þennan völl. Mér leið mjög vel hérna í fyrra. Það eru góðar og krefjandi holur hérna og svo holur sem gefa færi,“ sagði Ólafía. Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert