Birgir Leifur á tveimur yfir í dag

Birgir Leifur Hafþórsson
Birgir Leifur Hafþórsson Ljósmynd/Seth

Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lék á 73 högg­um eða tveimur höggum  yfir pari á öðrum hring á Itali­an Chal­lenge-mót­inu sem fram fer í Sar­dan­íu á Ítal­íu næstu daga. Mótið er hluti af Áskor­enda­mótaröð Evr­ópu.

Birgir Leifur er samtals á einu höggi yfir eftir tvo fyrstu hringina og óvíst er hvort það dugi honum til að komast í gegnum niðurskurðinn. Eins og staðan er núna er niðurskurðurinn miðaður við parið en margir kylfingar eiga eftir að spila svo staðan getur breyst.

Birgir Leifur fékk fjóra fugla á hringnum í dag, fjóra skolla og einn tvöfaldan skolla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert