Tiger fatast flugið

Tiger Woods
Tiger Woods AFP

Tiger Woods virðist ekki ætla að ná sínum fimmtánda risatitli á Carnoustie í dag og sínum fyrsta síðan 2008. Hann hefur tapað höggum en allt er í hnút á toppnum og hann á enn möguleika.

Rory McIlroy, Francesco Molinari, Kevin Chappell, Xander Schauffele og núverandi meistari Jordan Spieth eru allir á 6 undir pari. 

Næstir koma Eddie Pepperell, Kevin Kisner og Justin Rose á 5 undir pari. 

Tiger Woods er á 4 undir pari en hann var um tíma á 7 undir pari samtals en en tapaði höggum á 11. og 12. holu. 

Þeir sem eru í baráttunni eiga misjafnlega mikið eftir. Rose er á 17. holu og Pepperell er efstur þeirra sem skilað hafa inn skortinu. Spieth er hins vegar á 12. holu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert