Guðmundur Ágúst Kristjánsson er í sjötta sæti eftir tvo hringi á Holtsmark Open-mótinu í Nordic Tour-mótaröðinni í golfi. Leikið er í Svíþjóð.
Guðmundur hefur leikið báða hringi sína til þessa á 70 höggum, eða tveimur höggum undir pari, og er því samanlagt á fjórum höggum undir pari og í sjötta sæti, ásamt nokkrum öðrum kylfingum.
Íslendingurinn hefur leikið afar vel á mótaröðinni að undanförnu og hefur hann verið í toppbaráttu á þremur mótum í ágúst. Jacob Glennemo frá Svíþjóð er í efsta sæti á ellefu höggum undir pari.