Ólafía fór ekki í gegnum niðurskurðinn

Ólafía Þórunn er úr leik.
Ólafía Þórunn er úr leik. AFP

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er úr leik á Indy Women in Tech-mót­inu í LPGA-mótaröðinni eftir tvo hringi. Hún lék hringina tvo á samanlagt einu höggi undir pari og var tveimur höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn. 

Ólafía lék á 71 höggi, einu höggi undir pari á fyrri hringnum í gær og 72 höggum, eða á pari, í dag. Hún fékk tvo fugla, tvo skolla og 14 pör á holunum 18 í dag. 

Sem stendur er Sung Hyun Park frá Suður-Kóreu og Lizette Salas frá Bandaríkjunum jafnar í efsta sæti á tólf höggum undir pari. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert