Unglingaeinvígið á morgun

Ragnar Már Ríkarðsson hrósaði sigri á mótinu í fyrra.
Ragnar Már Ríkarðsson hrósaði sigri á mótinu í fyrra. Ljósmynd/golfklúbbur Mosfellsbæjar

Samsung-Unglingaeinvígið í golfi fer fram á Hlíðavelli í Mosfellsbæ á morgun. Þetta er 14. skiptið sem unglingaeinvígið er haldið, en mótið er á vegum Golfklúbbs Mosfellsbæjar.

Samsung-Unglingaeinvígið er boðsmót þar sem leikmenn vinna sér inn þátttökurétt með góðum árangri á Íslandsbankamótaröð GSÍ auk þess sem klúbbmeisturum GM er boðin þátttaka.

Undankeppnin hefst kl. 12.30 á morgun en þá mæta til leiks 10 kylfingar í hverjum aldursflokki.

Þrír komast áfram úr hverjum flokki í lokaeinvígið sem hefst um kl. 16.00.

Mótið er leikið eftir svokölluðu „shoot out“ fyrirkomulagi þar sem 10 leikmenn hefja leik og dettur einn leikmaður út á hverri holu þar til einn stendur uppi sem sigurvegari.

Sigurvegarar mótsins frá upphafi eru:

2005 – Sveinn Ísleifsson

2006 – Guðni Fannar Carrico

2007 – Andri Þór Björnsson

2008 – Guðjón Ingi Kristjánsson

2009 – Andri Már Óskarsson

2010 – Guðrún Brá Björgvinsdóttir

2011 – Ragnar Már Garðarsson

2012 – Aron Snær Júlíusson

2013 – Ingvar Andri Magnússon

2014 – Ingvar Andri Magnússon

2015 – Björn Óskar Guðjónsson

2016 – Henning Darri Þórðarson

2017 – Ragnar Már Ríkarðsson

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert