Fínn hringur hjá Guðmundi Ágústi

Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson. Ljósmynd/Ófeigur Lýðsson

Guðmundur Ágúst Kristjánsson hóf í dag keppni á Harboe Open-mótinu í golfi í Slagelse í Danmörku en mótið er hluti af Nordic Golf-mótaröðinni.

Guðmundur Ágúst lék fyrsta hringinn í dag á 70 höggum eða tveimur höggum undir pari vallarins. Hann fékk fjóra fugla á hringnum og tvo skolla. Guðmundur er þegar þetta er skrifað í 12.-20. sæti en margir kylfingar eiga eftir að ljúka leik í dag.

Staðan á mótinu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert