Góð byrjun hjá Haraldi Franklín

Haraldur Franklín Magnús.
Haraldur Franklín Magnús. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Atvinnukylfingarnir Haraldur Franklín Magnús og Ólafur Björn Loftsson hófu í gær leik á 1. stigs úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina en mótið fer fram í Austurríki.

Haraldur Franklín lék hringinn í gær á 69 höggum, þremur höggum undir pari. Hann fékk fimm fugla á hringnum og tvo skolla og er í 10.-16. sæti af þeim 116 kylfingum sem taka þátt í mótinu.

Ólafur Björn lék hringinn á 75 höggum eða þremur höggum yfir pari og er í 74.-87. sæti. Ólafur fékk einn fugl, tvo skolla og einn skramba á hringnum.

Staðan á mótinu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert