Haraldur og Ólafur komust báðir áfram

Haraldur Franklín Magnús.
Haraldur Franklín Magnús. mbl/Arnþór Birkisson

Atvinnukylfingarnir Haraldur Franklín Magnús og Ólafur Björn Loftsson komust báðir í gegnum niðurskurðinn í Austurríki á 1. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í gær.

Haraldur Franklín er samtals á 8 höggum undir pari eftir þrjá hringi og er í 18. sæti. Haraldur fékk þrjá fugla, einn örn og tvo skolla á þriðja hringum í gær og lék á þremur höggum undir pari.

Ólafur Björn átti flottan hring í gær en hann lék á 5 höggum undir pari og er samtals á fjórum höggum undir pari í 37. sæti.

Fjórði og síðasti hringurinn verður spilaður í dag en gera má ráð fyrir að rúmlega 20 kylfingar komist áfram á 2. stig úrtökumótsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert