Guðlaug Edda stóð sig vel í Kína

Guðlaug Edda Hannesdóttir.
Guðlaug Edda Hannesdóttir. Ljósmynd/Þríþrautasamband Íslands

Þríþrautarkonan Guðlaug Edda Hannesdóttir endaði  í 24. sæti á heimsbikarsmótaröðinni í Weihai í Kína en keppt var þar í gærmorgun. Keppt var í ólympískri þraut, sem samanstendur af 1.500 metra sundi, 40 kílómetra hjólreiðum og 10 kílómetra hlaupi. Tæplega 50 konur voru skráðar til leiks í þessari næst sterkustu þríþrautarseríu heims.

Guðlaug Edda byrjaði gríðarlega sterkt og var í fjórða sæti eftir sundið. Lítil mistök á skiptisvæðinu urðu til þess að Guðlaug missti af fremsta hópi, en náði þó þegar leið á að vinna sig aftur upp að fremstu konum. Um 30 konur voru saman í  stórum hjólahópi, en á öðrum hring á hjólinu náðu sex konur að brjóta sig frá hópnum. Þar á meðal voru Taylor Spivy, Bandaríkjunum og Miriam Garcia frá Spáni, en Miriam vann Evrópubikarsmótið í Malmö þar sem Guðlaug keppti fyrr í sumar. Þessar sex konur unnu sér inn rétt tæpar tvær mínútur á hjólaleggnum á næsta hóp þar sem Guðlaug Edda var.

Að hjólalegg loknum var komið að hlaupinu. Af þeim sex konum sem voru fremstar, hljóp engin betur en Taylor Spivy sem vann keppnina að lokum. Annamaria Mazzetti frá Ítalíu kom önnur og Miriam García þriðja.

Guðlaug átti góða skiptingu og byrjaði hlaupið mjög sterkt. Eftir fyrsta hring var Guðlaug á góðum stað en fékk krampa í lærin, sem líklega orsakast út frá gríðarlega erfiðri hjólabraut. Þetta olli því að það hægðist aðeins á, en Guðlaug náði þó að klára síðasta hringinn sterkt og endaði sem áður sagði í 24. sæti. Góður árangur hjá Guðlaugu Eddu en fyrir keppnina var hún skráð í 35. sæti á styrkleikalistanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert