Íslandsmeistarinn keppir í Portúgal

Axel Bóasson.
Axel Bóasson. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Íslandsmeistarinn Axel Bóasson úr Golfklúbbnum Keili hefur leik á morgun á 1. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina en leikið er á Obidos-vellinum í Portúgal. Þetta kemur fram í frétt á golf.is.

Þetta er í fimmta sinn sem Axel reynir fyrir sér á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Í fyrstu þrjú skiptin féll hann úr leik á 1. stiginu en í fyrra náði hann að komast inn á 2. stig úrtökumótsins.

Axel var með keppnisrétt í Áskorendamótaröðinni á þessu tímabil – í fyrsta sinn á ferlinum. Hann vann sér einn þátttökurétt með því að verða stigameistari í Nordic Tour-atvinnumótaröðinni. Á þessu tímabili lék Axel á 16 mótum í Áskorendamótaröðinni en hann endaði í sæti nr. 226 á stigalistanum.

Axel er fimmti íslenski kylfingurinn sem tekur þátt á 1. stigi úrtökumótsins á þessu hausti. Haraldur Franklín Magnús úr GR komst í gegnum 1. stigið og leikur því á 2. stiginu sem fram fer á fjórum keppnisvöllum samtímis í byrjun nóvember á Spáni. Andri Þór Björnsson (GR), Ólafur Björn Loftsson (GKG) og Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GR) komust ekki í gegnum 1. stigið.

Birgir Leifur Hafþórsson hefur síðan leik á 2. stigi úrtökumótsins í byrjun nóvember – og verður hann þá sjötti íslenski kylfingurinn á þessu hausti sem reynir fyrir sér á úrtökumóti Evrópumótaraðarinnar í karlaflokki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert