Ingvar Andri Magnússon og Hulda Clara Gestsdóttir léku á 68 höggum eða á þremur höggum undir pari í fjórbolta í liðakeppni á Ólympíuleikum ungmenna í Buenos Aires í Argentínu í dag.
Ingvar og Hulda fengu þrjá fugla og einn skolla á 18 holum og eru í 26. sæti af 32 liðum. Ítalía er efst á 13 höggum undir pari, eftir magnaðan hring í dag þar sem liðið lék á 57 höggum.
Annar hringurinn verður leikinn á morgun og þriðji og síðasti hringurinn á mánudaginn kemur.