Besti hringurinn dugði skammt

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir.

Besti hringur atvinnukylfingsins Valdísar Þóru Jónsdóttur á úrtökumóti LPGA í Flórída í kvöld dugði henni skammt.

Hún lék lokahringinn á 71 höggi, einu undir pari, en átti aldrei möguleika á að komast á lokastigið eftir verri útkomu fyrstu þrjá dagana þegar hún lék á 76, 78 og 73 höggum.

Valdís endaði á samtals tíu höggum yfir pari en leika þurfti á einu undir pari til að vera í hópi 25 efstu og komast áfram. Hún endaði í 110. sæti af þeim 193 kylfingum sem hófu keppni á öðru stigi úrtökumótanna á mánudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert