Ólafía færist fjær LPGA

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir mbl.is/Árni Sæberg

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir var langt frá sínu besta er hún lék fimmta hringinn sinn á loka­úr­töku­móti fyr­ir LPGA-mótaröðina í golfi á NO. 7-vell­in­um í Norður-Karólínu­ríki í dag. Ólafía lék á 78 höggum, sex höggum yfir pari.  

Hún er alls á 18 höggum yfir pari eftir fimm hringi og hefur heilt yfir ekki náð sér á strik. Ólafía fékk tvo tvöfalda skolla í dag, fimm skolla og þrjú pör. 

Ólafía er í 94. sæti, tólf höggum frá efstu 45 kylfingunum, sem fá þátttökurétt á mótaröðinni, sem er sú sterkasta í heimi. Alls eru leiknir átta hringir og þarf Ólafía að spila mun betur á síðustu þremur hringjunum til að eiga einhvern möguleika á að komast á mótaröðina þriðja árið í röð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert