Birgir og Haraldur í eldlínunni á Spáni

Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson. Ljósmynd/GSÍ

Haraldur Franklín Magnús úr GR og Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG hefja leik á morgun á 2. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í golfi.

Haraldur Franklín keppir á Desert Springs-vellinum á Spáni og Birgir Leifur leikur á El Encin-vellinum á Spáni.

Þetta er í þriðja sinn sem Haraldur Franklín reynir fyrir sér á úrtökumótinu fyrir sterkustu atvinnumótaröð Evrópu. Hann hefur í öll þrjú skiptin komist í gegnum 1. stigið en hann féll úr keppni á 2. stiginu í fyrra og árið þar á undan.

Birgir Leifur er að taka þátt í 20. sinn á ferlinum á úrtökumótinu. Hann tók þátt fyrst árið 1997 og er hann eini íslenski karlkylfingurinn sem hefur náð að tryggja sér keppnisrétt í Evrópumótaröðinni.

Alls er keppt á fjórum keppnisvöllum samtímis á Spáni dagana 2.-6. nóvember. Á hverjum velli fyrir sig eru um 75 keppendur og má gera ráð fyrir að um 20 efstu komist áfram á lokaúrtökumótið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert