Ólafía náði ekki að bæta stöðu sína

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur ekki náð sér á strik.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur ekki náð sér á strik. mbl.is/Árni Sæberg

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir náði ekki að bæta stöðu sína er hún lék sjötta hringinn sinn á loka­úr­töku­móti fyr­ir LPGA-mótaröðina í golfi á NO. 7-vell­in­um í Norður-Karólínu­ríki í dag. Ólafía lék á 74 höggum eða tveimur höggum yfir pari. 

Ólafía hefur ekki náð sér á strik á mótinu og er hún á samtals 20 höggum yfir pari eftir sex hringi og langt frá því að vera á meðal þeirra 45 sem tryggja sér sæti í LPGA-mótaröðinni, þeirri sterkustu í heimi. 

Hún er í 89. sæti af 101 kylfingi, tólf höggum frá því að komast á meðal 45 efstu þegar aðeins tveir hringir eru eftir og þarf hún því að leika gríðarlega vel til að eiga möguleika eftir áttunda og síðasta hringinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert