Guðrún Brá lék á fjórum yfir pari

Guðrún Brá Björgvinsdóttir.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Ljósmynd/GSÍ

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Íslandsmeistari í golfi, hefur lokið við að spila annan hringinn á 1. stigi úrtökumótsins fyrir LET Evrópumótaröðina í golfi en mótið fer fram í Marokkó.

Guðrún Brá lék hringinn í dag á 76 höggum eða fjórum höggum yfir pari og er samanlagt á sjö höggum yfir pari.

Leiknir verða fjórir hringir og komst 25 efstu kylfingarnir komast áfram á lokaúrtökumótið. Hún er þegar þetta er skrifað í 29.-37.sæti en margir keppendur eiga eftir að ljúka leik í dag.

Staðan á mótinu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert