Birgir Leifur enn á meðal efstu manna

Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson.

Birgir Leifur Hafþórsson er í níunda sæti ásamt nokkrum öðrum kylfingum eftir tvo hringi á öðru stigi úr­töku­mót­anna fyr­ir Evr­ópu­mótaröðina í golfi. Birgir, sem leikur á El Encín-vell­in­um í Madríd, lék hringinn í dag á 70 höggum, tveimur höggum undir pari. 

Hann er samtals á átta höggum undir pari í gær, en hann lék fyrsta hringinn á 66 höggum, sex höggum undir pari. Jose Geary frá Nýja-Sjálandi er efstur á samanlagt 13 höggum unir pari og Jorge Fernández frá Argentínu er annar á 12 höggum undir pari. 

Birgir Leifur leikur tvo síðustu hringina næstu tvo daga og með áframhaldandi spilamennsku í líkingu við fyrri tvo dagana, á hann mikinn möguleika á að komast áfram á lokastig úrtökumótanna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert