Valdís Þóra endurtók ekki leikinn

Valdís Þóra hefur lokið leik í Bonville.
Valdís Þóra hefur lokið leik í Bonville. Ljósmynd/LET/Tristan Jones

Valdís Þóra Jónsdóttir náði ekki að fylgja eftir sínum frábæra árangri frá því í Bonville fyrir ári þegar hún keppti á Australian Ladies Classic-mótinu í ár en hún féll úr keppni í nótt.

Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Valdís náði 3. sæti í fyrra en í ár gekk henni verr. Sérstaklega fór illa á fyrsta hringnum í fyrrinótt þegar hún lék á +7 höggum, en í nótt lék Valdís á +2 höggum og er því samtals á +9. Niðurskurðarlínan miðast við +6 högg og því var Valdís þremur höggum frá því að komast áfram.

Valdís hóf leik á 10. teig í nótt og fékk fugla á 14. og 18. braut, en skolla á 15. og tvöfaldan skolla bæði á 17. og 1. braut. Hún lauk svo hringnum með því að fá fugl á 9. braut.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert